Gullkaup

Þín leið að fjárfestingu í eðalmálmum

Fjárfestu í gulli, silfri og platínu með traustri milligöngu og öruggu ferli

[gc_metals_widget]

Hvernig virkar Gullkaup

Það er einfalt að hefja viðskipti, þú skráir þig, velur þinn eðalmálm og kaupir í gegnum öruggan vef.

Skráning

Þú stofnar aðgang
skráir þig á öruggan hátt á Gullkaup

Veldu eðalmálm

Veldu þinn eðalmál
Gull, silfur eða platínu eftir hvað hentar þér

Kauptu

Kauptu á öruggan hátt
Viðskitpin fara fram í gengum öruggan vef

1. Gengistryggð eign

Fjárfestingin fylgir þróun bandaríkjadollars.
Ef dollarinn hækkar, hækkar virði eignarinnar samhliða, óháð öðrum markaðssveiflum.
Þetta veitir náttúrulega vernd gegn verðbólgu.

2. Samkeppnishæf ávöxtun

Sögulega hafa eðalmálmar skilað góðri langtímaávöxtun miðað við hefðbundna sparnaðarleiðir, svo sem verðtryggða reikninga og ákveðin verðbréf.
Fjárfesting í eðalmálmum getur verið traust viðbót í vel dreifðu eignasafni.

3. Sveigjanleiki og aðgengi

Ólíkt mörgum verðtryggðum sparnaðarreikningum hjá bönkum, sem krefjast bindingar í lengri tíma, er hægt að leysa fjárfestingu út með skömmum fyrirvara.
Útborgun fer að jafnaði fram innan eins bankadags, án þess að fórna verðtryggingu.

  1. Þú stofnar þinn fjárfestinga-reikning á www.gullkaup.is
  2. Þú leggur inn á reikninginn úr þínum heimabanka.  Aðeins er boðið upp á að leggja inn úr heimabanka til að byrja með. 
  3. Eftir að inneign er kominn á þinn reikning þá:
    1. Velur þú þér þá mynt sem þú vilt kaupa. Gull – Silfur – Platínu
    2. Þú sérð svokallað Spot-verð á hverjum málmi.  Spot-verð er heimsmarkaðsverðið á hverjum málmi og breytist á hverri mínútu. 
    3. Þú velur þér það magn sem þú vilt kaupa í þeim málmi sem þú vilt og sérð þá heildarverðið miðað við Spot-verð, sölugengi USD (ÍSB) og þóknun.
  1. Athugaðu að heildarverðið breytist með breytingum á Spot-verði og gengi USD.
  2. Þú hefur um það bil eina mínútu til að velja Kaup og þannig læsa inni heildarverðið á kaupunum.     
    1. Þóknun Gullkaups er 4,99% nema að annað sé tekið fram og bætist við kaupin
    2. Þú færð senda kvittun um hæl fyrir kaupunum á uppgefinn tölvupóst.
    3. Þú færð einnig sendan reikning fyrir kaupunum á uppgefinn tölvupóst innan nokkurra daga.
    4. Við öll kaup yfir EUR 10.000 þarf kaupandi að fylla út Áreiðanleikakönnun.  Ef um lögaðila er að ræða þarf líka að fá upplýsingar um raunverulega eigendur ásamt þeim sem hafa heimild til þess að koma fram fyrir hönd lögaðilans. 

*** Gullkaup tryggir endurkaup á öllum málmum sem þú hefur keypt hjá Gullkaup ***

  1. Vinsamlegast athugaðu að aðeins er gengið frá endurkaupum á virkum bankadögum á milli kl. 9:00 og 16:00.  Varlegt er að gera ráð fyrir að salan leggist inn á þinn bankareikning næsta virkan bankadag.
  2. Þú setur inn beiðni um sölu á þeim myntum sem þú velur
  3. Þú færð uppgefið heildarverð sölunnar byggt á magni, Spot-verði og þóknun – eins og þegar þú keyptir málminn.  Ef þú velur að selja læsist það heildarverð inni.
  4. Andvirði sölunnar er lagt inn á uppgefinn bankareikning samdægurs eða næsta virkan bankadag á eftir. Það getur þýtt að ef þú selur síðdegis á föstudegi þá er ekki lagt inn á þinn bankareikning fyrr en á mánudegi fyrir kl. 16:00.  Sama á við um hátíðardaga.
  1. Allir málmar eru geymdar í öryggishvelfingum Loomis International, Malca-Amit og Brink´s í London. Öryggishvelfingarnar eru með allra ítrustu öryggisstöðlum.  Allir málmar geymdir í téðum öryggishvelfingum eru full-tryggðir fyrir heildarvirði.  Allir málmar eru Good Delivery bars sem þýðir hágæða málmar í fjárfestingagæðum með yfir 99,5% hreinleika.  Allir málmar í hverri öryggihvelfingu eru endurskoðaðir daglega og magn er staðfest.  Fulltrúar Gullkaups hafa tekið út og staðfest öryggi hvelfinganna. 
  2. Tekið er geymslugjald fyrir hvern byrjaðan mánuð.  ATH. Geymslugjaldið innifelur fullar tryggingar fyrir heildarvirði:
  3. Gull – 0,12% á ári, eða að lágmarki USD 4 fyrir hvern byrjaðan mánuð
  4. Silfur – 0,48% á ári, eða að lágmarki USD 8 fyrir hvern byrjaðan mánuð
  • Platína – 0,48% á ári, eða að lágmarki USD 8 fyrir hvern byrjaðan mánuð
  1. Þegar þú selur málma sem þú hefur keypt þá eru geymslugjöldin greidd upp fyrir alla byrjaða mánuði.  Það þýðir að ef þú kaupir 20. mars og selur 5. maí þá greiðir þú geymslugjöld fyrir þrjá mánuði.
  1. Það fylgir því mikil fyrirhöfn og kostnaður að fá málma senda til Íslands.  Sem dæmi þarf að greiða flutning, tryggingu, og þóknanir, og greiða 24% VSK við komuna til landsins.  Bara 24% VSK útrýmir allri ávöxtun á málminn langt fram í tímann og svo bætist annar kostnaður ofaná.  Gullkaup getur ekki, að svo stöddu, séð um það eftirlit og umsjón sem slíkum sendingum fylgir. 

*** ATH. Allir málmar sem Gullkaup selur eru þegar til og í reiðu í öryggishvelfingu – alltaf.

       Það eru aldrei seldir málmar; sem ekki eru þegar til – eða verða keyptir síðar.  Allir málmar Gullkaups eru í 99,99% fjárfestingagæðum. ***

Algengar spurningar

Náðu þér í appið

Með Gullkaup appinu geturðu keypt og selt gull, silfur og platínu á einfaldan og öruggan hátt.


Þú fylgist með gengi og eignastöðu í rauntíma — skýrt og aðgengilegt.

KAUPA

Gullkaup býður öryggi

SELJA

Gullkaup býður öryggi